Smá á laugardegi

304014_227544693965607_101401346579943_580095_1270459931_n.jpg Held svei mér þá að það sé bara kominn bullandi febrúar... ju minn.  Afhverju er maður alltaf að furða sig á hvað tíminn er fljótur að líða?  Löngu búin að sjá að hann er of fljótur að líða eða ekki nógu fljótur.  Kominn febrúar.... bráðum er hann búinn og kominn mars... svo apríl og svo mai og komið sumar.... sem ég er reyndar alveg viss um að þetta verður eðal gott sumar.  Hlakka bara til :o)

Siggi kom í gær með rútunni.  Ferlega góður að koma einn og vera ekkert mál.  Enda tíu ára gamall og alveg nógu stór til þess.  Hann gat nefnielga ekki komið síðustu helgi þar sem hann var lasinn og var sko alveg til í að koma einn þar sem litli gaurinn var einn síðustu helgi.  Svo koma þeir báðir eftir viku.  Endalaust bros þegar þeir koma.  Það er ekki einu sinni erfitt að vakna þegar þeir skríða upp í og segjast vera svangir... smá stírur sem þarf að nudda úr en svo er sprottið á fætur.  Núna hugsa mömmur örugglega að ég myndi sko ekki hugsa svona ef ég ætti sjálf börn sem væru hérna alltaf.... en ég veit betur... börnin eru yndisleg þó að þau geti verið óþekk, óhlýðin og allt milli himins og jarðar.... þau eru hrein guðsgjöf. 

Ég er sú sem ég er og þarf ekki þitt samþykki.... góð yfirlýsing.  Því að hvers vegna er fólk... alveg eins og þú og ég alltaf að leita í að þóknast öðrum?  Jú afþví að í mörgum tilfellum teljum við að það láti okkur líða betur.  EN þegar að er gáð, líður okkur betur með að gera allt eins og aðrir vilja en ekki að fara eftir eigin sannfæringu?  Held ekki.  Ég hef alveg fallið í þá gryfju að gera frekar eins og aðrir vilja til að hafa hlutina góða.... en ekki liðið vel með það vegna þess að ég fór gegn minni eign i-can-i-will-i-must-78715236_1133476.jpgsannfæringu.   Ég hef líka verið of föst fyrir og eyðilagt fyrir sjálfri mér með þrjóskunni.  Það er heldur ekki gáfulegt.  EN er þá ekki betra að reyna að leitast við að finna hinn gullna meðalveg og reyna að vera sáttur við sjálfa sig og aðra? Að hugsa ég er sú sem ég er og samþykki annara er ekki óskað er snilldar setning.  Ég get, ég ætla, ég skal.... 

En að því sögðu.... enda kannski búin að þvæla of mikið... en það skiptir ekki þetta er mitt þvæl :o)

Skjáumst seinna LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meira svona jákvætt, frænka sæl.

"Skjáumst" , flott nýyrði= heyrumst, hittumst, sjáumst.

Þetta er virkilega skjáumst :))))

Sigrún (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband